Tuesday, September 07, 2010     •  Login
 
   
 
 
 
 Iðngreinar     
  

 Lausnir     
  

 
News

Current Articles | Categories | Search

Samstarfssamningur 3X Technology og Menntaskólans á Ísafirði

Yfirlýst markmið samningsins er að auka námsframboð og bæta gæði iðnnáms við menntaskólann. Þetta verður gert með framúrskarandi verknámþjálfun þar sem stuðst er við nýjustu tækni þar sem starfsþjálfunin fer fram utan skólans. Með því móti öðlist nemendur hæfni og dýpri skilning á viðkomandi iðngrein. Samningurinn gildir til næstu fimm ára og samkvæmt honum lætur 3X skólanum í té aðgang að húsnæði og tækjum til kennslu í sérgreinum stálsmíða fyrir allt að 10 nemendur í einu, endurgjaldslaust. Þá er stefna 3X að hafa að minnsta kosti fimm nemendur í einu á námssamningi í stálsmíði út samningstímann.

Að sögn skólastjóra MÍ, Jóns Reynis Sigurvinssonar, hefur samningurinn mikla þýðingu fyrir skólann en hann gerir nemendum í málmiðngreinum kleyft að ljúka sveinsprófi í stálsmíði í heimabyggð eftir þriggja ára nám í skóla. Á móti er akkur 3X sá að fyrirtækið fær vel menntaða starfsmenn sem eru líklegir til að festa rætur í heimabyggð og tryggja þannig áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.

Samningurinn er liður í að auka veg iðnnáms við Menntaskólann á Ísafirði. Viðbrögð hafa ekki látið á sér standa og eru níu nemendur skráðir í nám í stálsmíði. Þá verður í fyrsta sinn boðið upp á hárgreiðslu- og snyrtibraut við skólann í vetur.

Frétt frá www.bb.is


Previous Page | Next Page

 Print   

 
 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000