Tuesday, September 07, 2010     •  Login
 
   
 
 
 
 Iðngreinar     
  

 Lausnir     
  

 
News

Current Articles | Categories | Search

Ný gerð af slægingarlínu seld til GPG Norge AS

Ný gerð af slægingarlínu hefur verið seld til Noregs. Línan er ný hönnun og sú fyrsta sinnar tegundar frá fyrirtækinu.  Slægingarlínan er sérstaklega hönnuð til að auka verðmæti afurðanna með bættri meðhöndlun og auka afköst með bættri vinnuaðstöðu.

Slægingarlínan er framleidd fyrir fyrirtækið GPG Norge A/S í Noregi sem er dótturfyrirtæki GPG á Íslandi. Slægingarlínan er 10 stæða og á hverri vinnustöð eru sér hólf fyrir lifur, hrogn og slóg. Fiskurinn fer að lokinni slægingu eftir bandi í þvott og þaðan aftur í kar. Lifur, hrogn og slóg fer síðan í kar hvort fyrir sig. Línan er útbúin bæði með hand- og sjálfvirkri innmötunarstýringu.

Previous Page | Next Page

 Print   

 
 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000