Tuesday, September 07, 2010     •  Login
 
   
 
 
 
 Iðngreinar     
  

 Lausnir     
  

 
News

Current Articles | Categories | Search

Fluguhnýtingar starfsmanna vekja athygli

Nokkrir starfsmenn 3X Technology tóku upp á því á nýju ári að hittast annað hvert föstudagskvöld til að hnýta flugur og segja veiðisögur sannar og lognar.  Það má með sanni segja að þessi gjörningur hafi vakið athygli því fyrir skömmu fjallaði Bæjarins Besta á Ísafirði um málið bæði á vef- og prentmiðli sínum.  Í síðustu útgáfu af vefritinu vinsæla "Flugufréttum" var aðalumfjöllun vikunnar um hnýtingar okkar manna ásamt viðtali sem tekið er við aðal forsprakka hópsins Gísla Þórðarson.

Gísli er hefur þann háttinn á að hann hættir að raka á sér skeggið fyrsta vetrardag og safnar skeggi þar til á sumardaginn fyrsta er hann lætur það fjúka.  Hann hendir því þó ekki eins og flestir sem slíkt stunda heldur notar það við hnýtingarnar og hefur hannað flugu sem hann kallar "Skeggið mitt"

Flugan sem er á myndinni hér að ofan er "Peter Ross" sem hnýtt er af Gísla á krók nr. 22 sem er agnarsmár.  Myndina tók Þorsteinn J. Tómasson.

Þess má að lokum geta að fluguhnýtingar verða áfram hálfsmánaðarlega fram á vorið, allir eru velkomnir hvort sem þeir eru starfsmenn fyrirtækisins eður ei.

Previous Page | Next Page

 Print   

 
 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000