|
|
Heimsókn Forseta Íslands
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson kom í dag 25. mars 2008 í heimsókn til 3X Technology. Heimsóknin er eftirfylgni vegna veitingu útflutningsverðlauna Forsetans sem fyrirtækið hlaut árið 2006.
Í fréttatilkynningu frá Forsetaembættinu kemur fram að verðlaunin hafi verið fyrir ágætan árangur sem fyrirtækið hafði náð á skömmum tíma í sölu og markaðsetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir
matvælaiðnaðinn. Ennfremur segir að árangur fyrirtækisins sýni hverju hugvit, þekking og tækni fær áorkað og starfsemi fyrirtækisins sé gott dæmi um nýsköpun í atvinnulífi á landsbyggðinni.
Með forseta í för var dómnefnd Útflutningsverðlaunanna, en hana
skipa fulltrúar frá Útflutningsráði, Alþýðusambandi Íslands og Háskóla
Íslands.

Forsvarsmenn og starfsfólk fyrirtækisins þakkar þessum aðilum heimsóknina hún er hvatning til okkar allra að gera enn betur.
Myndina tók Þorsteinn J. Tómasson.
Previous Page | Next Page