„VIÐ erum stöðugt að reyna að bæta okkur og auka fjölbreytnina,“segir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Brims á Akureyri. Fyrirtækið hefur að undanförnu tekið við heilfrystum bolfiski af eigin skipi til uppþíðingar fyrir vinnsluna, til viðbótar hefðbundnu hráefni af heimamiðum. Vinnsla á uppþíddum bolfiski hófst hjá Brimi í haust. Hún er liður í aðgerðum til að bregðast við minnkun þorskkvótans sem kom illa við fyrirtækið. Þá þurfti að leita leiða til að auka fjölbreytnina. „Við hugsum þetta sem leið til að jafna hráefnisöflun fyrir vinnsluna og minnka sveiflurnar. Við erum ekki eins háð veðri, vindum og aflabrögðum á hverjum tíma,“ segirÁgúst í viðtali við Mbl. Hann bætir því við að hráefnisöflun með þessum hætti geri fyrirtækinu kleift að ná í fisk lengra að en ella, til dæmis af fjarlægum miðum þar sem sigling með ferskt hráefni sé ekki möguleg. Fryst um borð í Brimnesi Heilfrysta hráefnið er viðbót við hráefnisöflun Brims á Akureyri. Meginhluti þess kemur af skipi Brims, Brimnesi RE 27, sem er sérbúið til að heilfrysta fisk. Brimnes var við veiðar í Barentshafi í vetur en er nú á heimamiðum. Ágúst segir að megnið af heilfrysta fiskinum sem fór til áframhaldandi vinnslu á Akureyri hafi komið úr Barentshafstúrunum. Á meðan skipið sé á heimamiðum sé verið að sækjast eftir karfa, gulllaxi og fleiri tegundum og dýrari tegundir eins og þorskur og ýsa séu meðafli. Því berist minni afli til uppþíðingar nú. Í frystihúsi Brims á Akureyri er unninn þorskur og ýsa af Brimnesi en ufsinn er þurrkaður hjá dótturfyrirtæki þess, Laugafiski.
Stýring frá upphafi
Keyptur var nýr uppþíðingarbúnaður fyrir vinnsluna. Ágúst Torfi segir að gæði hráefnisins hafi farið batnandi og séu orðin viðunandi. „Já, við erum ánægðir með þetta,“ segir Ágúst Torfi þegar hann er spurður hvort væntingar hafi gengið eftir. Hann tekur það fram að árangur hráefnisöflunar af þessu tagi byggist á því að fyrir-tækið hafi eigin veiðitæki til afnota og geti þannig haft stjórn á meðferð afla og gæðum frá upphafi til enda. Með því sé mörgum óvissu-þáttum eytt. „Þetta er hluti af þróuninni hjá okkur. Við erum stöðugt að leita leiða til að gera hlutina sem best og nýta auðlindina sem okkur er trúað fyrir á sem hagkvæmastan hátt,“segir Ágúst. Hann segir að heil-frysting og uppþíðing hráefnis auki mjög stöðugleikann í rekstrinum og fyrirtækinu í heild. 
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Uppþíðingarbúnaðurinn sem sem Guðmundur Beck vinnur við er notaður til að þíða upp heilfrystan fisk af Brimnesi, fyrir vinnsluna á Akureyri. Hann er nýr, frá 3X Technology á Ísafirði, og hefur skilað góðum árangri. (Frétt úr Morgunblaðinu 30. apríl 2008)